Loksins blogg

Jæja þá er Loki orðinn 9 mánaða.  Benni tók aðra einkun í úrvalsflokki á Tjarnhólum um daginn og fékk verðlaun fyrir besta hund í flokki. 025_855177.jpg 030.jpg

Veiðipróf!

Fór með Benna í óopinbert veiðipróf á laugardag sem haldið var á vegum retríever deildar.  Dæmt var eftir opnum flokki og fengu hundarnir umsögn eftir prófið en ekkert skráist í ættbók.  Frábært framtak hjá retriever deildinni sem vonandi verður framhald á.  Hörku mæting var og gátu menn séð hvar hundarnir voru staddir í þjálfun.  Auðvitað fékk Benni fyrstu einkunn:)

Rjúpa

Jæja þá er búið að bæta smá við myndir.  Fór með Benna á gæs um daginn og veiddum við býsna vel.  Gengur allt vel með Loka, hann er farinn að sækja allar tegundir af vængjum og aðeins farinn að hlýða.  Búinn að fara einu sinni á rjúpu og það veiddust tvær.

Ljósavíkur Loki

Loki Fæddist 17 Ágúst 2008.  Hann kemur frá Ljósavíkurræktun.  Við munum fá hann í hendurnar þann 12 Október.  Mikil tilhlökkun er á heimilinu og allir gríðalega spenntir.

Velkominn!!!!

Velkominn á síðuna mína

 

Þessa síðu ætla ég að tileinka hundunum mínum, Benna og Loka.  Þeir eru báðir hreinræktaðir Labradorar.  Benni er innfluttur frá Ameríku en Loki á Ameríska móður og Þýskan föður.  Í framtíðinni ætla ég mér að sitja inn myndir og upplýsingar um þá tvo.


Um bloggið

Baldvin Einarsson

Höfundur

Baldvin Einarsson
Baldvin Einarsson
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • ...025_855177
  • ...030
  • 026
  • 025
  • 024

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 2313

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband